Reykjavíkur rekur níu íbúaráð í hverfum borgarinnar og eitt þeirra er í Vesturbænum. Markmið íbúaráðanna er „að styrkja tengingu og stytta boðleiðir milli íbúa og stjórnsýslu borgarinnar og styðja við möguleika íbúa á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.“
Íbúaráð Vesturbæjar er skipað sex fulltrúum: Þrír eru kosnir af borgarstjórn, einn fulltrúi er skipaður af Íbúasamtökum Vesturbæjar, annar af foreldrafélögunum, og einn fulltrúi er slembivalinn.
Fulltrúi Íbúasamtaka Vesturbæjar í íbúaráðinu veturinn 2023-24 er Martin Swift, ritari.